Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Þörungar í volgum læk í Vonarskarði. © Kristján Jónasson

Vistgerðir

Vistgerðarannsóknum í Blánípuveri vestan Hofsjökuls 2002. © Sigurður H. Magnússon
Unnið að vistgerðarannsóknum í Blánípuveri vestan Hofsjökuls. Kerlingarfjöll í baksýn. Ljósm. Sigurður H. Magnússon

Í Evrópu og víðar hefur verið unnið að því að flokka land í vistgerðir, einkum vegna náttúruverndar og til að bæta stjórn landnýtingar. Hér á landi hefur verið áhugi fyrir að taka upp sambærilegar vinnuaðferðir og hóf Náttúrufræðistofnun Íslands rannsóknir á íslenskum vistgerðum árið 1999. Megintilgangur þeirra er að kanna hvaða vistgerðir eru hér á landi, lýsa þeim og skilgreina og þróa aðferðir til að meta verndargildi þeirra.

Hvað er vistgerð?

Vistgerð (e. habitat type) er landeining sem býr yfir ákveðnum eiginleikum hvað varðar loftslag, berggrunn, jarðveg, gróður og dýralíf. Innan sömu vistgerðar eru aðstæður með þeim hætti að þar þrífast svipuð samfélög plantna og dýra.

Hvað er vistlendi?

Vistlendi er samheiti yfir vistgerðir sem eru flokkaðar saman eftir skyldleika. Vistlendi á miðhálendi Íslands eru eyðilendi, moslendi, mólendi, rýrt votlendi og ríkt votlendi.


Þú ert hér: Forsíða > Vistgerðir

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Vistgerðir

  • Hugmyndafræði
  • Flokkun
  • Rannsóknir
  • Kort

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica