Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_left
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Samantekt frjómælinga 2022
Tekið hefur verið saman yfirlit yfir frjómælingar í Garðabæ og á Akureyri sumarið 2022. Á Akureyri var fjöldi frjókorna aðeins yfir meðaltali en í Garðabæ hafa aðeins einu sinni áður mælst svo fá frjókorn.
Hrafnaþing: Grænbók um líffræðilega fjölbreytni
Fyrsta Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar Íslands í vetur verður haldið miðvikudaginn 12. október kl. 15:15. Þá mun Snorri Sigurðsson sviðsstjóri náttúruverndar hjá stofnuninni greina frá forsendum og skipulagi vinnu við gerð grænbókar um líffræðilega fjölbreytni.
Alþjóðlegur dagur jarðbreytileikans
Í dag, 6. október 2022, er Alþjóðlegum degi jarðbreytileikans fagnað í fyrsta sinn.
Vísindakaffi á Breiðdalsvík
Í tengslum við Vísindavöku, sem haldin var síðastliðna helgi, býður Rannís upp á Vísindakaffi á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík, í samstarfi við borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands á Breiðdalsvík og Breiðdalssetur.
Íslensk náttúra í þrívídd á Vísindavöku
Vísindavaka 2022 verður haldin í Laugardalshöll, laugardaginn 1. október. Náttúrufræðistofnun Íslands verður á staðnum og býður gestum að kynnast því hvernig þrívíddartækni nýtist við rannsóknir á íslenskri náttúru.
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands 2022
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldinn á Hótel Hamri, Borgarnesi, miðvikudaginn 28. september kl. 13:30–17:00. Fundinum verður streymt á Teams.
Rannsóknir á mosadýrum á Íslandsmiðum
Nýverið kom út fræðigrein í tímaritinu Polar Biology sem fjallar um tegundafjölbreytni mosadýra (Bryozoa) á Íslandsmiðum. Mosadýr eru sambýli aragrúa smágerðra dýra, sem þekja steina eða annað hart undirlag.
Unnið að rannsóknum á svampdýrum við Ísland
Dagana 8.–19. september unnu sjö erlendir sérfræðingar í svampdýrum (Porifera) að því að greina svampdýr í Þekkingarsetrinu í Sandgerði, ásamt starfsmönnum frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Hafrannsóknastofnun.
Ný fræðigrein úr rannsókn á heilbrigði rjúpunnar
Nýlega er útkomin fræðigrein þar sem fjallað er um dreifingu sníkjudýra rjúpu og byggir á gögnum sem safnað var á Íslandi í rannsókn á heilbrigði rjúpunnar. Titill greinarinnar er „Identifying sources of variation in parasite aggregation“