Surtsey

Leiðangur líffræðinga til Surtseyjar 2009

Líffræðingar fóru í sinn árlega leiðangur til Surtseyjar dagana 13.–16. júlí 2009. Að þessu sinni voru þrír menn frá Náttúrufræðistofnun Íslands í leiðangrinum, auk þátttakenda frá Landbúnarðarháskóla Íslands, Náttúrustofu Suðurlands, Hafrannsóknastofnuninni og Matís. Í leiðangrinum var gróður og fuglalíf eyjarinnar kannað, skordýrum safnað, öndun og ljóstillífun í gróðri mæld, útbreiðsla þörunga og dýra í fjörum könnuð og sýnum safnað af örverum sem lifa við óvenjulegar aðstæður í Surstey. Í ljós kom að hægt hefur á landnámi nýrra plöntutegunda í eynni en smádýralíf hefur hins vegar eflst og fundust nokkrar nýjar tegundir. Leiðangurinn var farinn í samvinnu við Surtseyjarfélagið og Umhverfisstofnun. Lesa meira
 

Lóan er komin í Surtsey

Leiðangur var farinn til Surtseyjar 19.–21. maí s.l. til að setja þar upp sjálfvirka veðurstöð. Tími gafst til að fara um eyna og huga aðeins að gróðri og dýralífi. Það sem kom leiðangursmönnum mest á óvart var að finna heiðlóuhreiður með fjórum eggjum í hálfgrónu hrauninu á suðurhluta eyjarinnar. Þar hafði lóan gert sér hreiður í melgresistoppi.

Lesa meira
 

Surtseyjarleiðangur 2008

Árlegur leiðangur líffræðinga til Surtseyjar var farinn dagana 7. – 10. júlí 2008. Að þessu sinni voru fimm sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar Íslands í leiðangrinum og einn frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Auk þess voru þrír kvikmyndargerðarmenn á vegum kanadíska ríkissjónvarpsins með í för. Í ferðinni var landnám háplöntutegunda kannað, gróður mældur í föstum rannsóknareitum og jarðvegssýni tekin. Í reitunum var einnig mæld ljóstillífun plantna og jarðvegsöndun. Mosum var safnað um alla eyjuna og könnun gerð á sveppum, en mjög langt er síðan að hugað hefur verið þar að þessum hópum lífvera í eyjunni. Fuglalíf var kannað og smádýrum safnað bæði í föstum reitum og vítt og breitt um eyjuna. Lesa meira
 

Surtsey á heimsminjaskrá

Surtsey er komin á heimsminjaskrá UNESCO sem einstakur staður náttúruminja á heimsmælikvarða. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi á 32. fundi heimsminjanefndar UNESCO sem haldinn er í Quebec í Kanada. Fram kemur í rökstuðningi nefndarinnar að það sem þyki einna merkilegast við eyjuna er að hún hafi verið verndað friðland frá því hún myndaðist í eldgosi á árunum 1963 til 1967 og sé þannig einstök rannsóknastöð. Lesa meira
 

Sýning Náttúrufræðistofnunar í Þjóðmenningarhúsinu - SURTSEY 1963-2130

Sýningin Surtsey - jörð úr ægi verður opnuð almenningi í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu n.k. mánudag, 7. maí. Náttúrufræðistofnun Íslands stendur fyrir sýningunni og hefur notið stuðnings fjölda stofnana og fyrirtækja til þess að ógleymdum ráðuneytum umhverfis- og menntamála. 40 ár eru liðin 5. júní nk. frá því eldgosi lauk í Surtsey en það braust upp á yfirborð sjávar 14. nóvember 1963. Surtsey var tilnefnd á heimsminjaskrá UNESCO og er niðurstöðu að vænta á árinu 2008. Lesa meira
 

Mikil fjölgun tegunda í Surtsey 2007

Annað árið í röð fundust óvenjumargar tegundir háplantna í árlegum leiðangri Náttúrufræðistofnunar Íslands til Surtseyjar auk þess sem eldri landnemar komu í leitirnar sem ekki hafa sést þar í nokkur ár. Einn merkasti plöntufundur í leiðangrinum er burkninn þrílaufungur, sem er þriðja burknategundin sem finnst í Surtsey. Athygli vakti hvað gróður var víða illa farinn af þurrki, einkum á hraunklöppum þar sem jarðvegur er grunnur. Lesa meira
 

Miklar breytingar á lífríki Surtseyjar 2006

Árlegur sumarleiðangur líffræðinga Náttúrufræðistofnunar til Surtseyjar var farinn dagana 17. - 20. júlí, 2006. Að þessu sinni voru gerðar mælingar á þekju gróðurs og tegundasamsetningu í föstum rannsóknareitum, en í þeim var einnig mæld ljóstillífun plantna og losun koltvísýrings úr jarðvegi. Lesa meira
 

SURTSEY: 40 ára vöktun eldfjallaeyjar

Nú í nóvember 2003 eru fjörtíu ár síðan Surtsey reis úr hafi. Jarðfræðingar fylgdust vel með eldgosunum (1963-1967) og gerðu margvíslegar rannsóknir á gosefnunum. En eyjan hefur einnig verið vöktuð síðan gosum lauk. Jarðvísindamenn hafa fylgst með sjávarrofinu, sigi eyjarinnar, þróun jarðhitasvæðisins, útfellingum sjaldgæfra steinda í hraunhellum, myndun móbergs úr gosöskunni og spáð hefur verið um framtíð Surtseyjar. Í erindinu mun Sveinn ræða helstu niðurstöður þessarra rannsókna. Lesa meira
 

Landnám smádýra á Surtsey

Erling Ólafsson, skordýrafræðingur.

23. april 2003.

Lesa meira
 

Eyjarani fundinn í Surtsey og Ingólfshöfða

Sumarið 2002 voru skráðir tveir nýir fundarstaðir eyjarana (Ceutorhynchus insularis). Þeir eru Surtsey og Ingólfshöfði en áður voru einungis tveir fundarstaðir þekktir í heiminum, Suðurey við Vestmannaeyjar og eyjan St. Kilda fyrir utan Skotland.
Lesa meira
 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: