Distribution
Hann er algengur á láglendi um allt land (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Graslendi, bollar og brekkur (Hörður Kristinsson 1998).Description
Meðalhár fífill (20–35 sm) með áberandi hærðum stönglum og reifablöðum. Blómstrar nokkrum gulum körfum í júní–júlí.
BlaðStöngullinn greindur allra efst, með löngum (5–7 mm), stífum, svörtum hárum. Blöðin í stofnhvirfingu, um 8 sm löng, lensulaga, nær heilrend, með löngum randhárum og örsmáum tannörðum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru í körfum sem eru 2–2,5 sm í þvermál, með fagurgulum tungukrónum. Fræflar fimm, samgrónir í hólk utan um stílinn sem er klofinn í toppinn. Reifablöðin græn með svörtu miðrifi og löngum hárum, öll upprétt (Hörður Kristinsson 1998).
AfbrigðiTil er afbrigði af íslandsfífli með eldrauðum blómum sem nefnist roðafífill (Pilosella aurantiaca eða Hieracium aurantiacum). Hann hefur eitthvað verið ræktaður í görðum og slæðist auðveldlega þaðan. Því finnst hann sums staðar villtur í grennd við bæi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
GreiningLíkist undafíflum. Helsta einkenni Íslandsfífils eru hin löngu, stinnu hár á stöngli og blöðum. Einnig þekkist hann á hinum þéttstæðu körfum efst á stönglinum. Auðþekktur frá skarifífli og túnfífli á blöðunum.
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Graslendi, bollar og brekkur (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Íslandsfífill (Pilosella islandica)