Skeiðönd (Spatula clypeata)

Útbreiðsla

Skeiðönd verpur í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu. Hún er farfugl, en stöku fuglar sjást hér á vetrum.

Stofnfjöldi

Skeiðönd er sjaldgæfur varpfugl hér á landi og stofninn líklega <250 einstaklingar. Hún er hvergi algeng en varp finnst á nokkrum stöðum umhverfis landið (Yann Kolbeinsson og Aðalsteinn Örn Snæþórsson 2019).

Válistaflokkun

VU* (í nokkurri hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
VU* LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 4,77 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 2010-2024

Íslenski skeiðandarstofninn er lítill og talinn innan við 250 kynþroska fuglar. Hann flokkast því strangt til tekið í hættu (EN, D). Þetta mat er hins vegar fært niður um einn flokk samkvæmt leiðbeiningum IUCN, enda getur íslenski skeiðandarstofninn ekki talist einangraður og er auk þess <1% af evrópska stofninum. Endanlegt mat er því að skeiðönd sé í nokkurri hættu (VU).

Viðmið IUCN: (D)

D. Stofn mjög lítill eða takmarkaður.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Skeiðönd var flokkuð sem tegund í hættu (EN).

Válisti 2018: Skeiðönd var flokkuð sem tegund í nokkurri hættu (VU).

Verndun

Skeiðönd er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Mikilvæg svæði

Engir varp-, viðkomu- eða fellistaðir hér á landi teljast alþjóðlega mikilvægir fyrir skeiðendur.

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 i: 5.810 fuglar/birds; 1.937 pör/pairs (Wetlands International 2016)

B1 i: NV-Evrópa = 560 fuglar/birds; 187 pör/pairs (Wetlands International 2016)

Myndir

Heimildir

Yann Kolbeinsson & Aðalsteinn Ö. Snæþórsson 2019. Sjaldgæfir fuglar á Íslandi 2011. – Bliki 33: 47-68

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search[skoðað 26. nóvember 2016].

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018.

Aldís Erna Pálsdóttir mars 2025

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Seildýr (Chordata)
Flokkur (Class)
Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order)
Andfuglar (Anseriformes)
Tegund (Species)
Skeiðönd (Spatula clypeata)

English Summary

The Spatula clypeata population in Iceland is roughly estimated <100 pairs. No areas in Iceland meet IBA criteria for this species.

Icelandic Red list 2025: Vulnerable (VU, D).