Fræðsla fyrir börn
Undanfarin ár hefur Náttúrufræðistofnun Íslands unnið fræðsluefni fyrir börn um viðfangsefni náttúrunnar, meðal annars fyrir Vísindavöku Rannís. Hér má nálgast fræðsluefnið á rafrænu formi til að prenta út. Meðal efnis eru myndir af sveppum, pöddum, frjókornum og fuglum til að lita, sveppagoggur sem hægt er að brjóta saman og pödduórói sem hægt er að lita, setja saman og hengja upp. Þá er hér einnig að finna fræðslubæklinga um hvert viðfangsefni fyrir sig.
Íslenski refurinn – Vísindavaka 2018
Gríma til að að prenta út og lita og fræðslubæklingur.
Íslenski refurinn – Fræðslubæklingur
Smellið á myndina til að prenta út í fullri stærð.
Steindir og kristallar – Vísindavaka 2012
Teikningar af ýmsum kristöllum sem hægt er prenta út og brjóta í form. Smellið á myndir til að prenta út í fullri stærð.
Sveppir alls staðar – Vísindavaka 2011
Verkefni, litablöð, goggur og fræðslubæklingur. Smellið á tenglana og myndirnar til að spreyta ykkur.
Á vængjum fögrum: Fiðrildi – Vísindavaka 2010
Litablað, getraun og fræðslubæklingur. Smellið á tengil og mynd til að spreyta ykkur.
Pöddur – Vísindavaka 2009
Litablöð og fræðslubæklingur. Smellið á myndirnar til að prenta út í fullri stærð.
Fræðist um frjókorn – Vísindavaka 2008
Litablöð af rafeindasmásjármynd af frjókorni til að lita og fræðslubæklingur. Smellið á myndir til að prenta út í fullri stærð.
Njósnað um ferðir fugla – Vísindavaka 2007
Litablað, kort af flugi margæsar og fræðslubæklingur. Smellið á myndir til að prenta út í fullri stærð.
Geitungar á Íslandi – Vísindavaka 2006
Litablað af holugeitungi og fræðslubæklingur. Smellið á mynd til að prenta út í fullri stærð.