Eyrugla (Asio otus)

Útbreiðsla

Eyrugla er mjög útbreiddur varpfugl í Evrópu, Asíu og N-Ameríku og velur sér margvíslegt skóglendi til varps en líka opnara land til veiða. Hún er farfugl í nyrsta hluta heimkynna og hefur verið þekkt sem flækingsfugl hér á landi um langt skeið. Er algengust á haustin og virðist tíðum hafa haft hér vetursetu og raun sést fram á sumar (Birding Iceland 2006, Bliki 1981–, Gunnlaugur Pétursson og Gunnlaugur Þráinsson 1999). Eyruglur hafa orpið hér a.m.k. frá 2003 (Daníel Bergmann 2005) og þá aðallega í trjáræktarreitum á Suðvesturlandi. Farið var í töluvert átak upp úr 2010 að finna eyrugluhreiður hér á landi og eftir 2022 hafa staðfest varppör verið rúmlega 20 talsins á hverju ári (Gunnar Þór Hallgrímsson, 2024). 

Stofnfjöldi

Eyruglur láta ekki mikið á sér bera á varpslóðum og því er mat á stofninum erfiðleikum bundið en væntanlega verpa hér fáeinir tugir para.

Válistaflokkun

VU** (í nokkurri hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
VU** LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 5,7 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 2007-2024

Íslenski eyruglustofninn er enn mjög lítill (líklega <50 kynþroska einstaklingar) og ætti því að teljast í bráðri hættu (CR). Hér er hún færð niður um tvo flokka samkvæmt leiðbeiningum IUCN vegna þess að ekki er hægt að tala um einangraðan stofn sem er að auki <1% Evrópustofns og eins eru miklar líkur á að hún gæti numið land hér að nýju. Hún er því flokkuð sem tegund í nokkurri hættu (VU).

Viðmið IUCN: (D)

D. Stofn mjög lítill eða takmarkaður.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Eyrugla var ekki á válista.

Válisti 2018: Eyrugla var í nokkurri hættu (VU, D)

Verndun

Eyrugla er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Mikilvæg svæði

IBA viðmið – IBA criteria:

Engin/none

Heimildir

Daníel Bergmann 2005. Eyrugla verpur á Íslandi. Bliki 26: 47–50.

Birding Iceland. Little Gulls in Iceland up to and including 2006, https://notendur.hi.is/yannk/status_asiotu.html

Bliki: Tímarit um fugla 1981- . Sjaldgæfir fuglar á Íslandi. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.

Gunnar Þór Hallgrímsson 2024. Uglurannsóknir. Erindi flutt á Hrafnaþingi Náttúrufræðistofnunar 3. apríl 2024. https://www.youtube.com/watch?v=ENvnYFvdLDw&t=1014s

Gunnlaugur Pétursson og Gunnlaugur Þráinsson 1999. Sjaldgæfir fuglar á Íslandi fyrir 1981. – Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 37. 246 bls.

Jóhann Óli Hilmarsson 2011- . Sjaldgæfir varpfuglar.  Fuglar, nr 8 og áfram.

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018

Aldís Erna Pálsdóttir mars 2025

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Seildýr (Chordata)
Flokkur (Class)
Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order)
Uglur (Strigiphormes)
Tegund (Species)
Eyrugla (Asio otus)

English Summary

Asio otus is a recent and rare breeding bird in Iceland with probably a few dozen pairs breeding annually. No IBAs are designated for this species.

Icelandic Red list 2025: Vulnerable (VU).