Útbreiðsla
Mjög sjaldgæft á Íslandi, þótt það sé með algengasta berjalynginu í Noregi og Svíþjóð (Sæ: tyttebær). Heimkynni rauðberjalyngsins á Íslandi eru á Austfjörðum en einnig vex það á þrem stöðum í Öxarfirði. Á síðari árum hefur það einnig fundist í Þrastarskógi og í furulundinum við Rauðavatn og gæti það á báðum þeim stöðum verið aðflutt með skógrækt (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Lyngmóar, birkiskógur.Lýsing
Lágvaxinn runni (5–30 sm) með stinn, gulgræn blöð og hvít eða bleikleit blóm sem þroskast í rauð, safarík ber.
BlaðBlöðin sígræn, jaðrar ofurlítið tenntir og áberandi niðurorpnir (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
BlómBlóm yfirsætin og drúpandi (Lid og Lid 2005).
AldinRauð ber, safarík og æt (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
GreiningÞað líkist nokkuð sortulyngi en blöðin eru oftast gulgrænni, ofurlítið tennt, þynnri en á sortulyngi og með niðurorpnum röndum. Berin eru rauð og safarík.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | LC |
Forsendur flokkunar
Rauðberjalyng flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Rauðberjalyng er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Rauðberjalyng er ekki á válista.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Lyngmóar, birkiskógur.Biota
- Tegund (Species)
- Rauðberjalyng (Vaccinium vitis-idaea)