Útbreiðsla
Mjög sjaldgæf jurt sem aðeins finnst norðarlega á Austfjörðum á svæðinu frá Unaósi að Norðfirði, einkum í þeim hlíðum sem vita mót suðri. Hæsti fundarstaður lyngbúans er í 350–400 m undir Nípukolli í Norðfirði (Hjörleifur Guttormsson) (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Gras- og lynglautir, stundum undir klettum.Lýsing
Lágvaxin jurt (10–15 sm) með bláum blómum og fjólubláleitum, gishærðum blöðum. Blómgast í júní–júlí.
BlaðStöngull kafloðinn, laufblöðin 10–15 sm á lengd, hærð, nær heilrennd og mjókka jafnt niður að stilknum. Stoðblöð blómanna eru miklu lengri (2–3 sm) en blómin, tungulaga, loðin, mjög þétt og krossgagnstæð svo sprotinn virðist ferstrendur (Hörður Kristinsson 1998). Ungir sprotar hafa ferstrenda pýramídalögun áður en þeir teygja úr sér (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
BlómBlómin eru blá og varaskipt. Krónupípan 10–15 mm löng, neðri vörin fjórflipuð, efri vörin örstutt, blómginið loðið. Fræflar fjórir, frævan með einum stíl (Hörður Kristinsson 1998).
AldinSmáhnetur með fitutotu, fræjunum er dreift af maurum þar sem þeir eru til staðar (Lid og Lid 2005).
GreiningAuðþekktur á hinum þéttstæðu blöðum blómskipunarinnar sem mynda ferstrendan topp (Hörður Kristinsson 1998).
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Lyngbúi flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga.
Viðmið IUCN: D1
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D1. Fjöldi fullþroska einstaklinga.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Lyngbúi er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Lyngbúi er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Verndun
Lyngbúi er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Gras- og lynglautir, stundum undir klettum.Biota
- Tegund (Species)
- Lyngbúi (Ajuga pyramidalis)