Útbreiðsla
Mjög sjaldgæft, aðeins fundið á tveimur stöðum.Vistgerðir
Sjávarfitjar.Lýsing
Hávaxið sef (10–40 sm) með gulgræn blöð og beinvaxin strá, stoðblaðið styttra en blómskipanin.
BlaðMyndar þéttar eða gisnar breiður með skriðulum jarðstönglum. Blöðin gulgræn, lin, flöt eða nærri sívöl. Stráin bein og grönn með sívöl slíður (Lid og Lid 2005). Stoðblaðið styttra en blómskipanin (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómhlíf dökkrauðbrún, snubbótt, 2,5–4 mm löng (Lid og Lid 2005).
GreiningSkylt stinnasefi en með fleiri og fíngerðari blómhnoð, stoðblaðið styttra en blómskipanin.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Fitjasef flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 1 km2 auk þess sem einungis tveir fundarstaðir eru þekktir.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Fitjasef er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Fitjasef er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Verndun
Fitjasef er friðað samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Sjávarfitjar.Biota
- Tegund (Species)
- Fitjasef (Juncus gerardii)