Útbreiðsla
Sjaldgæf og hvergi mikið af henni, þó má hana finna í flestum landshlutum nema miðhálendinu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Skóglendi og grasbollar (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Hávaxin jurt (30–60 sm) með tvö gagnstæð laufblöð og nokkur blóm í gisnum klasa. Blómgast í júní–júlí.
BlaðBlómleggurinn og stöngullinn kirtilhærður. Tvö heilrend, egglaga eða sporbaugótt, bogstrengjótt laufblöð neðan til á stönglinum, 6–12 sm löng og 2,4–6 sm breið (Hörður Kristinsson 1998).
BlómEinn, 5–8 sm langur, gisinn blómklasi efst á stönglinum (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningAuðþekkt á hinum tveim, stóru, egglaga blöðum. Hjartatvíblaðka hefur miklu minni hjartalaga blöð.
Verndun
Eggtvíblaðka er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda. Hún er þó ekki á válista.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Skóglendi og grasbollar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Eggtvíblaðka (Listera ovata)