Útbreiðsla
Það er algengt í túnum og í nágrenni túna í byggð um land allt, einnig víða meðfram vegum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Almennt
NytjarAlgeng tegund í túnum og sáðsléttum.
Vistgerðir
Tún og annað graslendi. Háliðagras er ræktað í túnum en slæðist þaðan í graslendi, skurði og vegkanta (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Hávaxið gras (30–120 sm) með langt, grátt, þétt en mjúkt ax. Blómgast í júní–júlí.
BlaðStráið er sívalt. Slíðurhimnan 2–3 mm á lengd, þverstífð en skörðótt. Blöðin flöt, 5–9 mm á breidd (Hörður Kristinsson 1998).
BlómSmáöxin eru einblóma, þétt saman í sívölu, gráu, 3–8 sm löngu og 6–10 mm breiðu samaxi, sem við nánari athugun reynist þó vera axpuntur þar sem smáöxin hafa örstutta greinda leggi. Smáöxin með týtu sem oftast er nokkuð styttri en axagnirnar. Fræflarnir hanga út úr axinu um blómgunartíma, með fjólubláa eða brúna frjóhnappa (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið er hneta þar sem fræskurn og aldinhýði er runnið saman í eitt (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist vallarfoxgrasi en þekkist frá því á mýkri punti. Axagnir smáaxanna á vallarfoxgrasi eru einnig með tvö einkennandi horn. Eins eru smáöx háliðagrassins lausari á axhelmunni. Háliðagras þekkist frá knjáliðagrasi á lengri og ljósari punti auk þess sem háliðagras er mun hávaxnara (Hörður Kristinsson 1998).
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Tún og annað graslendi. Háliðagras er ræktað í túnum en slæðist þaðan í graslendi, skurði og vegkanta (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Háliðagras (Alopecurus pratensis)