Útbreiðsla
Finnst í öllum landshlutum (Bergþór Jóhannsson 1995b).Vistgerðir
Vex á rökum jarðvegi, í dýjum, lindum og lækjarbökkum. Vex einnig í og við raka kletta, í rökum flögum og í mýrlendi. Getur vaxið í hellisskútum og í hraungjótum en er þá mjög fíngerður. Blöðin hrinda frá sér vatni (Bergþór Jóhannsson 1995b).Lýsing
Mjög breytileg tegund. Plöntur ekki glansandi, ljósrauðar, blá-, ljós- eða hvítgrænar ofan til (Bergþór Jóhannsson 1995b).
GróliðurMjög breytileg tegund að stærð og útliti, frá fíngerðum þráðlaga plöntum upp í stórvaxnar, nokkuð grófgerðar plöntur í stórum bólstrum. Plöntur 1-15 sm eða meira, blágrænar, ljósgrænar, hvítgrænar eða ljósrauðar ofan til, brúnleitar neðst. Plöntur ekki glansandi. Stöngull rauður, getur verið grænn eða gulleitur á smávöxnum plöntum. Rætlingar brúnir eða rauðbrúnir, vörtóttir. Blöð frekar dreifð á stöngli, oftast hvítgræn eða blágræn, egglaga eða egglensulaga, ydd, geta verið snubbótt. Blöð oftast 2-2,5 mm en geta verið niður í 1 mm á smávöxnum eintökum. Blöð oftast tennt framan til en geta verið heilrend.Blöðin hrinda frá sér vatni. Þess vegna má oft sjá vatnsdropa dansa ofan á bólstrunum (Bergþór Jóhannsson 1995b).
KynliðurPlöntur einkynja, sjaldan með gróhirslum. Stilkur 1,8-5 sm, rauður eða rauðgulur, veiklulegur, bugðóttur. Þurrir stilkar mjög bugðóttir. Gróhirsla egglaga, drúpandi, brún, ljósrauð eða dökkrauð. Þurrar, tómar gróhirslur með víðu opi. Háls stuttur. Lok keilulaga (Bergþór Jóhannsson 1995b).
FrumurFrumur í framhluta blaðs með þunnum veggjum, tígullaga eða aflangt sexhyrndar. Frumur í blaðrönd mjórri og lengri. Frumur í blaðrönd og fremst í blaði eru með heldur þykkari veggjum en frumur innar í blaði (Bergþór Jóhannsson 1995b).
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Bergþór Jóhannsson 2007
Vex á rökum jarðvegi, í dýjum, lindum og lækjarbökkum. Vex einnig í og við raka kletta, í rökum flögum og í mýrlendi. Getur vaxið í hellisskútum og í hraungjótum en er þá mjög fíngerður. Blöðin hrinda frá sér vatni (Bergþór Jóhannsson 1995b).Biota
- Tegund (Species)
- Lindaskart (Pohlia wahlenbergii)