Útbreiðsla
Sjaldgæf (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Ísaltar tjarnir og sjávarlón.Lýsing
Fíngerð jurt með þráðlaga blöð og vex í hálfsöltum sjávarlónum.
BlaðGreinóttir stönglar og þráðlaga, fíngerð blöð (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru blómhlífarlaus á löngum leggjum og vefjast blómstönglarnir oft upp í gorma þegar aldinin þroskast (Hörður Kristinsson 1998).
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | LC |
Forsendur flokkunar
Lónajurt flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 15 km2.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Lónajurt er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Lónajurt er ekki á válista.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Ísaltar tjarnir og sjávarlón.Biota
- Tegund (Species)
- Lónajurt (Ruppia maritima)