Útbreiðsla
Er með sjaldgæfari háfjallajurtum landsins og virðist einkum halda sig við þann hluta hálendisins sem hefur tiltölulega landrænt loftslag, inn til landsins á Norðurlandi eða á miðhálendinu (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Melar og rindar á háfjölllum.Lýsing
Mjög smávaxin jurt (2–4 sm) sem finnst aðeins hátt til fjalla. Hún er hærð og blómstar gulum blómklösum í júlí.
BlaðStönglar loðnir. Blöðin oddbaugótt eða breiðlensulaga, heilrend, randhærð og oft kvíslhærð á blaðfletinum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin fjórdeild. Krónublöðn gul, 3–4 mm á lengd, öfugegglaga. Bikarblöðin um 2 mm, sporbaugótt, með himnufaldi. Fræflar sex. Ein fræva (Hörður Kristinsson 1998).
AldinFlatur skálpur, 4–5 mm á lengd og 2–3 mm á breidd (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningAuðgreind í blóma frá öðrum íslenskum tegundum, annars torgreind frá hagavorblómi. Fjallavorblómið hefur þó styttri og breiðari skálpa og blaðflöturinn er oftast minna hærður eða hárlaus.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Melar og rindar á háfjölllum.Biota
- Tegund (Species)
- Fjallavorblóm (Draba oxycarpa)