Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf, finnst einkum um landið norðanvert (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Tjarnastæði, tjarnarbakkar, lækjarfarvegir, rakar áreyrar og flæðarmál stöðuvatna (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Lágvaxin planta (3–20 sm) með mjög breytilega blaðlögun og örsmá, fjórdeild, gul blóm í klösum. Blómgast í júlí.
BlaðBlöðin 1–4 sm á lengd, afar breytileg að gerð, fjaðurflipótt eða fjaðurskipt, einkum neðan til. Smáblöðin tennt eða sepótt, endasmáblaðið oft áberandi stærra en hin (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin standa í klasa, örsmá, fjórdeild. Krónublöðin gul, mjó, spaða- eða tungulaga, innan við 2 mm á lengd. Bikarblöðin heldur styttri, bleikleit eða grænfjólublá, himurend. Fræflar sex. Frævan ein, um 1 mm á lengd í blóminu (Hörður Kristinsson 1998).
AldinSívalur, eilítið boginn skálpur, 7–10 mm á lengd og 2–2,5 mm á breidd. Stilkurinn helmingi styttri eða miklu styttri en skálpurinn (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Tjarnastæði, tjarnarbakkar, lækjarfarvegir, rakar áreyrar og flæðarmál stöðuvatna (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Kattarjurt (Rorippa islandica)