Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf á Íslandi, finnst einkum frá fjöllunum umhverfis Fnjóskadal og austur undir Langanes (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Fjallamelar. Flög eða flagkenndir móar, venjulega uppi á flötum fjallanna eða uppi á hæðum og bungum, einkum þar sem deigur jarðvegur er (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Smávaxin jurt með hvítum fimmdeildum blómum.
BlaðVex oftast í þyrpingum eða myndar smáþúfur (Hörður Kristinsson 1998).
BlómFjallkrækillinn er með hvít, fimmdeild blóm. Blómstönglar stuttir (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst snækrækli en ólíkt honum myndar fjallkrækill örsmáar þúfur.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Súrsmæra flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem stöðug fækkun hefur verið greind undanfarin ár.
Viðmið IUCN: C2a(i)
C. Stofn talinn minni en 250 fullþroska einstaklingar og:C2. Fullþroska einstaklingum hefur fækkað samfellt samkvæmt athugun, áætlun eða ályktun OG:(a) Stofngerð þannig að;(i) enginn undirstofn sé talinn stærri en 50 fullþroska einstaklingar.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Fjallkrækill er á válista í hættuflokknum VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Fjallkrækill er á válista í hættuflokknum LR (í nokkurri hættu).
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Fjallamelar. Flög eða flagkenndir móar, venjulega uppi á flötum fjallanna eða uppi á hæðum og bungum, einkum þar sem deigur jarðvegur er (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Fjallkrækill (Sagina caespitosa)