Útbreiðsla
Finnst nokkuð oft inni í bæjum og í byggð, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, þótt ekki geti hún talist algeng (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Röskuð svæði, garðar eða hlaðvarpar (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Meðalhá planta (15–30 sm) með purpurarauðum blómum í blaðöxlunum. Blómgast í júní–júlí.
BlaðStöngullinn ferstrendur. Blöðin gagnstæð, þéttust efst, stilkuð, hjartalaga eða nýrlaga, gróftennt, tennur sljóar, blöðin misstór, 1–4 sm í þvermál (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru allmörg saman út frá blaðöxlunum. Krónan 10–15 mm á lengd, einsamhverf, purpurarauð, loðin að utan, varaskipt. Bikarinn klofinn í fimm flipa niður að miðju. Bikarfliparnir oddmjóir, nær striklaga, hærðir, gleiðir og útstæðir. Fræflar fjórir. Frævan með einum stíl og klofnu fræni (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist öðrum tvítönnum sem finnast við bæi og í kauptúnum sem slæðingar, með áþekk purpurarauð blóm. Varpatvítönn hefur kringluleitari blöð, þau efri stilklaus og feðma um stöngulinn. Garðatvítönn hefur nýrlaga laufblöð og hlutfallslega lengri bikarflipa.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Röskuð svæði, garðar eða hlaðvarpar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Akurtvítönn (Lamium purpureum)