Útbreiðsla
Afar sjaldgæf, aðeins fundin í Kvískerjum í Öræfum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Kjarrlendi og gróðursælar hlíðar (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Meðalhár rósarunni (50–150 sm) með fjöðruð blöð og bleik blóm. Hún hefur ekki fundist í blóma á Íslandi nema í ræktun.
BlaðBlöðin eru stakfjöðruð, með tveim til þrem hliðarpörum. Smáblöðin hvasstennt, egglaga eða sporbaugótt, oftast með greinilegum oddi að framan, 2–3,5 sm löng og 1,5–2,5 sm breið. Axlablöðin löng, samgróin stilknum langt upp eftir (1–1,5 sm). Stöngullinn með gisnum, sterklegum, klóbognum þyrnum. Greinarnar slútandi (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru bleik, 4–6 sm í þvermál, krónublöðin öfughjartalaga, 2–3 sm löng, bikarblöðin um 1,5 sm, oddlöng, útsveigð (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst þyrnirós en glitrós hefur bleik blóm, gisnari þyrna, stærri axlablöð og oddmjórri blaðtennur.
Válistaflokkun
CR (tegund í bráðri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
CR | NE |
Forsendur flokkunar
Glitrós er einungis fundin á einum stað á suðaustanverðu landinu og er stofninn mjög lítill, færri en 50 fullþroska einstaklingar.
Viðmið IUCN: D
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Glitrós er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Válisti 1996: Glitrós er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Verndun
Glitrós er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Kjarrlendi og gróðursælar hlíðar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Glitrós (Rosa dumalis)