10. febrúar 2021. Árni Einarsson: Lesið í minjalandslag

Árni Einarsson forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn flytur erindi á Hrafnaþingi miðvikudaginn 10. febrúar 2021 kl. 15:15.

Víða um land má sjá skýr merki um fornminjar. Stór hluti þeirra er frá fyrstu öldum Íslands byggðar. Myndatökur af minjunum úr flugvél og dróna og með aðstoð gervitunglamynda og jarðvegssniða gefur ómetanlegar upplýsingar um elstu byggðina í landinu. Í erindinu verður farið yfir helstu minjaflokka og hvernig þeir birtast á yfirborði jarðar. Myndirnar leiða í ljós að gagngerar breytingar hafa orðið snemma á túnræktun og byggðamynstri.

Fyrirlesturinn á Youtube