Veggjakönguló (Selenops radiatus)

Útbreiðsla

Miðjarðarhafslönd Evrópu, Afríku og Miðausturlanda, Afríka sunnan Sahara, Indland og áfram austur til Kína.

Ísland: Slæðingur á Grundartanga í Hvalfirði.

Lífshættir

Í Suður-Evrópu heldur veggjakönguló sig einkum í húsum, skemmum og geymslum, í sprungum í húsveggjum og læðist fram á nóttunni til að veiða. Hún sést ógjarnan og er því lítið vitað um lífshætti hennar. Þar sem meira er af henni þykir hún hin gagnlegasta við að halda í skefjum skordýraplágum í matvörugeymslum. Veggjakönguló er einstaklega snör í snúningum. Hún skýst á örskotshraða inn í fylgsni komi að henni styggð, eins þegar hún verður vör við bráð nálast. Þá stekkur hún upp og snýr sér í loftinu með undraverðri snerpu og nákvæmni og bráðin dauðadæmd. Er hún talin vera eitt sneggsta dýr jarðar.

Almennt

Margt er óljóst um útbreiðslu veggjaköngulóar í Suður-Evrópu vegna þess hve dult hún fer og sýnir sig sjaldan. Fundarstaðir eru því strjálir og óljósir. Jafnvel hefur gengið treglega að fanga eintök til að staðfesta heimkynni. Þekkt eru tilfelli þar sem köngulær hafa borist með varningi í gámum. Slæðingar eru til dæmis þekktir í Belgíu og Englandi. Jafn fágæt og slík tilvik eru þykir með ólíkindum að veggjakönguló hafi fundist í gámi á Grundartanga í Hvalfirði í október 2021.

Veggjakönguló (bollengd 16 mm) er lýsandi fyrir tegundir ættar sinnar. Egglaga bolurinn er flatur, skil á milli höfuðbols og afturbols ógreinileg og liggja útstrekktir framsveigðir fætur eins og flatur krans út frá bolnum. Eitt af ensku heitum köngulóarinnar, flatties, er mjög lýsandi. Liturinn er gulbrúnn, fætur með dekkri brúnum beltum.

Útbreiðslukort

Heimildir

Araneae. Spiders of Europe. Selenops radiatus Latreille, 1819.

(https://araneae.nmbe.ch/data/2933/Selenops_radiatus) .

Kunt, K.B., S. Tezkan , E.A. Yağmur 2011. The first record of family Selenopidae (Arachnida: Araneae) from Turkey. Turk. J. Zool. 35: 607-610.

Lo Casico, P. & F. Grita 2010. First record of the spider family Selenopidae in Italy (Araneae). Naturalista sicil., S. IV, 34: 385-389.

Wikipedia. Selenopidae. (https://en.wikipedia.org/wiki/Selenopidae)

Wikipedia. Selenops radiatus. (https://en.wikipedia.org/wiki/Selenops radiatus)

Höfundur

Erling Ólafsson, 4. nóvember 2022.

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Klóskerar (Chelicherata)
Flokkur (Class)
Áttfætlur (Arachnida)
Ættbálkur (Order)
Köngulær (Araneae)
Ætt (Family)
Veggjaköngulóarætt (Selenopidae)
Tegund (Species)
Veggjakönguló (Selenops radiatus)