Járnsmiður (Nebria rufescens)

Útbreiðsla

Umhverfis norðurhvel. Norðurlönd nema allra syðst og áfram austur eftir norðurslóðum Rússlands og Síberíu, Novaya Zemlya, hálendi Mið-Evrópu, hálendi Skotlands, skosku eyjarnar, Færeyjar, Grænland, norðurslóðir N-Ameríku.

Ísland: Mjög algengur á láglendi um land, strjálli á miðhálendinu, en hefur þó fundist þar víða.

Lífshættir

Járnsmiður finnst við margskonar aðstæður, gjarnan á lítt grónum bökkum tjarna og straumvatna og þar sem jarðvegur er opinn og rakur. Einnig í húsagörðum og sést þar oft hlaupa yfir stéttar í kvöldrökkri þegar rakt er loftið. Hann veiðir önnur smádýr sér til matar.

Almennt

Járnsmiður er norræn tegund en samt miklu algengari á láglendi en hálendi. Hann er hin dæmigerða ímynd Íslendinga um bjöllu. Á hálendinu finnst hann einna helst á jarðhitasvæðum. Hann er almennt vel þekkt bjalla hér á landi og heiti hans flestum tiltækt. Hann á sér nokkra áþekka ættingja á Íslandi sem er gjarnan við hann ruglað.

Járnsmiður (10 mm) er alsvartur og gljáandi, grannir og langir leggir, ýmist svartir eða rauðir á lit, leggjalengri en aðar smiðsbjöllur af sama stærðarflokki. Hann er afar frár á fæti.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Lindroth, C.H., 1985. The Carabidae (Coleoptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna entomologica scandi-navica 15, part 1. E.J. Brill/Scandinavian Science Press Ltd, Leiden, Kaupmannahöfn. 225 bls.

Höfundur

Erling Ólafsson 14. ágúst 2009, uppfært 4. nóvember 2021.

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Bjöllur (Coleoptera)
Ætt (Family)
Járnsmiðsætt (Carabidae)
Tegund (Species)
Járnsmiður (Nebria rufescens)