Leðursmiður (Carabus coriaceus)

Útbreiðsla

Evrópa og Austurlönd nær. Víða í Evrópu; Norðurlönd, með ströndum til miðbiks Noregs en ekki í Finnlandi, suður til Miðjarðarhafs en ekki á Bretlandseyjum eða Íberíuskaga.

Ísland: Tilfallandi slæðingur í Reykjavík og á Blönduósi.

Lífshættir

Á Norðurlöndum finnst leðursmiður einna helst í skógum með sjávarströndum, á hæfilega raklendum skógarbotnum með ríkulegu lagi rotnandi plöntuleifa. Hann heldur til jafnt í laufskógum sem barrskógum. Nýklaktar bjöllur koma fram síðsumars og æxlast í ágúst til september. Margar fullorðnar bjöllur liggja í vetrardvala og fara á kreik á vorin en taka sér svo aðra hvíld fyrrihluta sumars. Lirfur leggjast einnig í vetrardvala en þroski þeirra og uppvöxtur kann að taka tvö til þrjú ár á norðlægari slóðum tegundarinnar. Leðursmiður er öflugt rándýr á skógarbotnum.

Almennt

Leðursmiður er einungis tilfallandi gestur hér á landi og litlar líkur eru til þess að hann setjist hér að í bráð. Sex tilfelli eru skráð, þrjú tengjast innflutningi á jólatrjám eða greni, hin þrjú öðrum vörulagerum. Allir bárust smiðirnir lifandi til landsins. Sá fyrsti fannst í Reykjavík í desember 1985 og hafði hann borist með dönskum jólatrjám. Svipað var uppi á teningum jólin 1991 en þá fannst sá næsti sem einnig barst með dönskum jólatrjám. Sá þriðji fannst síðan á Blönduósi í desember 2005 og tengdist hann innfluttum grenigreinum. Í september 2006 fannst leðursmiður í verksmiðju Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í Reykjavík og síðast tveir með mánaðar millibili haustið 2022.

Leðursmiður (25 mm) er einkar stór og öflug bjalla, sú stærsta sinnar ættar sem borist hefur hingað til lands. Hann er auðþekktur bara af stærðinni. Leðursmiður er einlitur dökkur með bláleitri áferð og mattur. Yfirborð skjaldvængja líkist einna helst áferð á grófu leðri. Munnlimir eru mjög kraftmiklir svo hér er án efa um að ræða ógnvald mikinn í heimi smádýra í skógarbotnum.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Fauna Europaea. Carabus coriaceus. http://www.faunaeur.org/full_results.php?id=387197 [skoðað 1.8.2012]

Lindroth, C.H., 1985. The Carabidae (Coleoptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna Entomologica Scandinavica 15, part 1. E.J. Brill/Scandinavian Science Press Ltd, Leiden, Kaupmannahöfn. 225 bls.

Höfundur

Erling Ólafsson 1. ágúst 2012, 26. október 2022.

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Bjöllur (Coleoptera)
Ætt (Family)
Járnsmiðsætt (Carabidae)
Tegund (Species)
Leðursmiður (Carabus coriaceus)