Sílamáfur (Larus fuscus)

Útbreiðsla

Sílamáfur verpur í Evrópu og hluta Síberíu. Hann nam hér land upp úr 1930 og fjölgaði að því er virðist samfellt fram til 2004 þegar sandsílabresturinn hófst. Sílamáfur er farfugl og fer til stranda Portúgals, Spánar og V-Afríku á vetrum (Gunnar Þór Hallgrímsson o.fl. 2012). Íslenskir varpfuglar teljast til deilitegundarinnar L. f. graellsii sem verpur auk þess í Færeyjum og á Bretlandseyjum. 

Stofnfjöldi

Varpstofninn var metinn um 50.000 pör fram til 2004 þegar sandsílabresturinn hófst (Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn). Langstærsta varpið er á Rosmhvalanesi (Miðnesheiði), talið yfir 40 þúsund pör árið 2004 en aðeins um 5.000 pör árið 2005 (Gunnar Þór Hallgrímsson og Páll Hersteinsson 2011). 

Válistaflokkun

NT (í yfirvofandi hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
NT LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 10,96 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1991-2024

Ljóst er að stærsta varpsvæði sílamáfa á Miðnesheiði hefur dregist mjög mikið saman en talningar vantar sárlega á mörgum varpsvæðum. Sílamáfur er langlífur fugl og viðmiðunartímabilið langt (33 ár). Úttektir á varpinu á Miðnesheiði sýndu 50-80% fækkun í fjölda varpfugla milli 1990-2018. Mögulega er sú fækkun sé vegna tilfærslu fugla, en varpið er nú dreifðara og varppör finnast víða í lágum þéttleika sem gerir stofnstærðarmat erfiðara. Þar sem þróun í flestum öðrum vörpum er óþekkt þá er sílamáfur hér af varfærni flokkaður sem tegund í yfirvofandi hættu (NT).

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Sílamáfur var ekki í hættu (LC).

Válisti 2018: Sílamáfur var flokkaður sem Gögn vantar (DD).

Verndun

Sílamáfur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Samkvæmt reglugerð 456/1994 er heimilt er að veiða sílamáf allt árið.

Mikilvæg svæði

Eitt varpsvæði hér telst alþjóðlega mikilvægt fyrir sílamáf, þ.e. á Rosmhvalanesi (sjá töflu).

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 i: Evrópa/Afríka/SA-Asía = 4.983 pör/pairs (Wetlands 2016)

B1 i: V-Evrópa/Miðjarðarhaf/N-Afríka (L.f. graellsii) = 1.937 pör/pairs (Wetlands 2016)

Töflur

Sílamáfsvörp á mikilvægum fuglasvæðum á Íslandi – Colonies of Larus fuscus in important bird areas in Iceland.

Svæði
Area
Svæðisnúmer
Area code
Árstími
Season
Fjöldi (pör)
Number (pairs)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Rosmhvalanes1 SF-V_3 B **40.200 2004 89,3 A4i, A4iii, B1i
Álftanes–Skerjafjörður2 FG-V_2 B 1.000 2004 2,2  
Borgarfjörður–Löngufjörur2,3 SF-V_6 B 800 2005 1,8  
Alls–Total     42.000   93,3  
1Gunnar Þ. Hallgrímsson og Páll Hersteinsson 2011
2Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpubl. data
3Gunnar Þ. Hallgrímsson o.fl. 2006
**31.138 pör 2005; stofnhrun vegna ætisskorts - 31.138 pairs in 2005; sharp decline due to food shortage.

Myndir

Heimildir

Gunnar Þór Hallgrímsson og Páll Hersteinsson 2011. Spatial contraction in a large gull colony in relation to the position of Arctic Fox dens. European Journal of Wildlife Research 58: 441–450.

Gunnar Þór Hallgrímsson, Hallgrímur Gunnarsson og Páll Hersteinsson 2006. Stærð sílamáfsvarps á Álftanesi á Mýrum. Bliki 27: 55–57.

Gunnar Þór Hallgrímsson, Hallgrímur Gunnarsson, Ólafur Torfason, R.J. Buijs og K.C.J. Camphuysen 2012. Migration pattern of Icelandic Lesser Black-backed Gulls Larus fuscus graellsii: indications of a leap-frog system. Journal of Ornithology 153: 603–609.

Náttúrustofa Suðvesturlands og Þekkingarsetur Suðurnesja 2018. Varpstofn sílamáfa á Miðnesheiði 2018 - Þátttaka almennings í vísindarannsóknum.

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search[skoðað 26. nóvember 2016].

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018

Aldís Erna Pálsdóttir apríl 2025

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Seildýr (Chordata)
Flokkur (Class)
Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order)
Strandfuglar (Charadriiformes)
Tegund (Species)
Sílamáfur (Larus fuscus)

English Summary

Larus fuscus colonized Iceland in the 1930s and is now the most common gull in Iceland, estimated 50,000 pairs in 2004. Numbers have declined considerably since, due to crash of the sandeel Ammodytes spp. stocks. One IBA is designated for this species, holding 90% of the population.

Icelandic Red list 2025: Near threatened (NT).