Útbreiðsla
Algeng um land allt, einkum þó til fjalla og á hálendinu.Vistgerðir
Vex á grjóti.Lýsing
Grábrún hrúðurflétta á grjóti. Þalið með svörtu forþali, reitskipt, þalreitir fíngerðir, 0,3-0,8 mm, grábrúnir eða brúnir með ljósri rönd, gljáandi.
ÞaliðGrábrún hrúðurflétta. Þalið með svörtu forþali, reitskipt, þalreitir fíngerðir, 0,3-0,8 mm, grábrúnir eða brúnir með ljósri rönd, gljáandi.
AskhirslaAskhirslur svartar, mattar, óreglulega hyrndar eða nær kringlóttar, oftast flatar eða íhvolfar, í hæð við þalið á milli þalreitanna.
GreiningLíkist nokkuð brúnsnurðu, sem hefur þó betur afmarkaðar askhirslur sem rísa meira upp af þalinu.
Útbreiðslukort
Höfundur
Starri Heiðmarsson 2007
Vex á grjóti.Biota
- Tegund (Species)
- (Immersaria athroocarpa)