Grákrókar (Cladonia rangiferina)

Útbreiðsla

Algengir um allt land (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).

Búsvæði

Vaxa á þúfum í mólendi (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).

Lýsing

Grákrókar eru gráleitir á litinn, oft með brúnleitum eða fjólubláum blæ (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).

Þalið

Þalgreinar 4-10 sm háar, gráar eða hvítar, oft brúnar og stundum með fjóbláum eða blágráum blæ í endana, mikil greining. Greinar beinast ákveðið í eina átt, greiningin að mestu fjórklofin, sjaldnar þríklofin í endana, ungir greinaendar allt að 2 mm í þvermál, sljóir (Purvis o.fl. 1992).

Askhirsla

Askhirslur brúnar, lítt áberandi, sjaldséðar. Byttur innihalda litlaust hlaup (Purvis o.fl. 1992).

Greining

Grákrókar vaxa á þúfum í mólendi en það er ætíð minna af þeim en af hreindýrakrókum. Þeir hafa enga úsninsýru og vantar því þann gula blæ sem hún gefur hreindýrakrókunum. Grákrókar eru gráleitir á litinn, oft með brúnleitum eða fjólubláum blæ (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).

Útbreiðslukort

Höfundur

Starri Heiðmarsson 2007

Ríki (Kingdom)
Sveppir (Fungi)
Fylking (Phylum)
Asksveppir (Ascomycota)
Undirfylking (Subphylum)
Skálarundirfylking (Pezizomycotina)
Flokkur (Class)
Törguflokkur (Lecanoromycetes)
Undirflokkur (Subclass)
Lecanoromycetidae (Lecanoromycetidae)
Ættbálkur (Order)
Lecanorales (Lecanorales)
Ætt (Family)
Cladoniaceae (Cladoniaceae)
Tegund (Species)
Grákrókar (Cladonia rangiferina)