Útbreiðsla
Algeng um land allt.Vistgerðir
Vex á klettum.Lýsing
Hrúðurflétta sem vex á klettum, allstór með hvítt eða ljósgrátt, skarplega reitskipt þal með ofurlítið vaxkenndri áferð og mörgum, svörtum askhirslum.
ÞaliðÞal hrúðurkennt, allstórt, hvítt eða ljósgrátt, skarplega reitskipt með ofurlítið vaxkenndri áferð.
AskhirslaAskhirslur eru margar, svartar, oft ferstrendar, fimmstrendar eða sexstrendar líkt og þalreitirnir með skörpum hornum, stundum ofurlítið hrímaðar, oft 1-2 mm í þvermál.
Útbreiðslukort
Höfundur
Starri Heiðmarsson 2007
Vex á klettum.Biota
- Tegund (Species)
- (Lecidea tesselata)