Vistgerðir
Vex á mosagrónum eða ógrónum jarðvegi.Lýsing
Hrúðurkennd flétta sem vex á mosagrónum eða ógrónum jarðvegi, þalið þunnt, hvítleitt, gráleitt eða ljósbrúnt, oft svo þunnt að það verður nær ósýnilegt og undirlagið skín í gegn.
ÞaliðHrúðurkennd flétta, þalið þunnt, hvítleitt, gráleitt eða ljósbrúnt, oft svo þunnt að það verður nær ósýnilegt og undirlagið skín í gegn.
AskhirslaAskhirslurnar eru hnöttóttar skjóður sem standa hálfar upp úr þalinu og mynda svarta hálfkúlu um 0,3 mm í þvermál með punktlaga opi í toppinn. Gróin eru afar sérstæð, mjög stór, aflöng og spólulaga, með ávölum oddi í báða enda, glær og marghólfa múrskipt gerð af um 120-200 frumum.
Útbreiðslukort
Höfundur
Starri Heiðmarsson 2007
Vex á mosagrónum eða ógrónum jarðvegi.Biota
- Tegund (Species)
- (Protothelenella sphinctrinoides)