Rótsælda (Picipes melanopus)

Útbreiðsla

Fundin í birkiskógum á Norðurlandi eystra og Héraði, einnig í skógarreit við Rauðavatn (Helgi Hallgrímsson óútgefið).

Almennt

Nytjar

Er talinn ætur (Helgi Hallgrímsson óútgefið).

Skaðsemi

Getur líklega valdið fúa í gömlum birkitrjám (Helgi Hallgrímsson óútgefið).

Búsvæði

Vex oftast á grónum jarðvegi í grennd við gömul birkitré eða trjástubba og virðist spretta af trjárótunum, stundum einnig á trjástubbum (Helgi Hallgrímsson óútgefið).

Lýsing

Allstór og nokkuð þykkholda. Hattur 5-12 sm í þvermál, flatur eða dældaður, oft óreglulega lagaður, jafnvel samsettur af nokkrum vænglaga flipum (Helgi Hallgrímsson óútgefið).

Sveppaldin

Hattur 5-12 sm í þvermál, flatur eða dældaður, oft óreglulega lagaður, jafnvel samsettur af nokkrum vænglaga flipum, gulgrábrúnn eða grábrúnn, með vattkenndu eða flösuhærðu yfirborði, síðan oftast ber, hnökróttur, oft rákaður og blettóttur. Sáldlag hvítt fyrst, síðan gul- eða brúnleitt, oftast niðurvaxið. Borur mjóar (4-7 á mm), sívalar til kantaðar. Stafur oftast stuttur, 2-5 sm, gjarnan með grópum eða görðum og alþakinn sótbrúnni eða dökkrauðbrúnni ló. Hold ljósbrúnleitt, seigt, leður- eða korkkennt, eftir rakastigi, með þægilegri lykt og mildu bragði (Helgi Hallgrímsson óútgefið).

Útbreiðslukort

Höfundur

Bergþór Jóhannsson 2007

Ríki (Kingdom)
Sveppir (Fungi)
Fylking (Phylum)
Kólfsveppir (Basidiomycota)
Undirfylking (Subphylum)
Kempuundirfylking (Agaricomycotina)
Flokkur (Class)
Kempuflokkur (Agaricomycetes)
Ættbálkur (Order)
Polyporales (Polyporales)
Ætt (Family)
Polyporaceae (Polyporaceae)
Tegund (Species)
Rótsælda (Picipes melanopus)