Kelduhnokki (Bryum pseudotriquetrum)

Búsvæði

Vex í raka, í dýjum, við lindir og læki, í mýrum og rökum klettum (Bergþór Jóhannsson 1995).

Lýsing

Kelduhnokki. Plöntur 1,5-11 sm, grænar, brúnar eða rauðar, stundum áberandi tvílitar, grænar og rauðar. Neðan til eru plöntur brúnar eða svartleitar. Rætlingar eru oft þéttir langt upp eftir stönglum og greinum. Þeir eru rauðir, brúnir eða rauðgulir, grófvörtóttir. Blöð nokkurn veginn jafn þétt um allan stöngul. Rök blöð upprétt eða dálítið útstæð. Þurr blöð undin og liggja upp að stöngli. Blöð 2-4 mm, flöt eða kúpt, egglensulaga, stuttydd. Blaðgrunnur rauður. Blöð oftast tennt fremst. Rif breitt, verður rautt með aldrinum, nær oftast fram úr blöðku og myndar stuttan brodd á blöðin.

Frumur í framhluta blaðs tígullaga eða sexhyrndar, með þykkum eða þunnum veggjum. Frumur í blaðgrunni ferhyrndar. Blaðrönd eitt frumulag á þykkt.

Plöntur einkynja. Stilkur sterklegur, rauður eða brúnn, 2,5-5 sm. Gróhirsla brún, regluleg, aflöng og sívöl, drúpandi eða vísar á ská niður á við. Lok kúpt, með totu í endann. Gróhirsluop rauðgult, rautt, brúnt eða gult. Ytri tennur gulleitar neðan til en litlausar fremst. Innri krans gulur. Innri tennur með breiðum götum eftir miðju. Alloft með gróhirslum.

(Bergþór Jóhannsson 1995)

Útbreiðslukort

Heimildir

Bergþór Jóhannsson. 1995b. Íslenskir mosar: Hnokkmosaætt. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 27. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_27.pdf

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Baukmosar (Bryophyta)
Flokkur (Class)
Hnokkmosar (Bryopsida)
Tegund (Species)
Kelduhnokki (Bryum pseudotriquetrum)