Fergin (Equisetum fluviatile)

Útbreiðsla

Það vex víða um land frá láglendi upp í um 650 m hæð. Það vantar á þurrari og hærri hlutum miðhálendisins. Hæst hefur það fundist í liðlega 700 m hæð við Orravatnsrústir á Hofsafrétti.

Almennt

Kallast einnig tjarnelfting.

Í vatni myndar það oft samfelldar breiður og verður þar mjög hávaxið, en í mýrum vex það jafnan strjált innan um annan gróður og er þar lágvaxnara.

Búsvæði

Tjarnir og vatnavik, síki, lygnir vatnsfarvegir, blautir flóar.

Lýsing

Fremur hávaxin elfting, 30–80 sm há en getur verið hærri í djúpu vatni. Ýmist engar eða fáar hliðargreinar.

Blað

Sprotar fergins vaxa upp af láréttum, brúnum, langskriðulum jarðstönglum. Þeir eru greinalausir, liðskiptir, 4-7 mm breiðir, sumargrænir, mjúkir viðkomu með afar víðu miðholi, sívalir og lítið gáraðir. Oftast að mestu ógreindir, en stundum með fáeinum stuttum, sívölum, ferstrendum greinum um miðbik stöngulsins, oft aðeins ein eða tvær við hvern lið. Tennt slíður er við hvern lið, slíðurtennur oftast 12–18 talsins, oddmjóar, reglulegar, þéttstæðar, dökkbrúnar eða svartar, oftast með móleitu belti neðan undir.

Blóm

Gróaxið endastætt á grænum stönglum, snubbótt í toppinn.

Greining

Fergin er fremur auðþekkt frá flestum öðrum elftingum á greinalausu vaxtarlagi, og á gildum stönglum með víðu miðholi. Líkist helst eski en ferginið er mýkra og linara viðkomu, hefur miklu víðara miðhol, reglulegri og varanlegri slíðurtennur og vex í blautara landi.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Elftingar (Equisetopsida)
Ætt (Family)
Elftingarætt (Equisetaceae)
Tegund (Species)
Fergin (Equisetum fluviatile)