Útbreiðsla
Hann var fluttur til landsins fyrir alllöngu síðan og vex aðeins á fáum stöðum á landinu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Við tún og bæi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Meðalhá til hávaxin jurt (20–80 sm) með mjó blöð og legglöng, hvítleit blóm í sveipum (Lid og Lid 2005).
BlaðBlöðin nær sívöl, 4–5 mm þykk, með laukbragði, visna snemma (Lid og Lid 2005).
BlómBlómin með allt að 10 mm langa, granna leggi, hvítleit og standa allmörg saman í sveip, sem er umlukinn tveim allbreiðum hulsturblöðum á meðan þau eru að þroskast (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
AldinÁ milli blómanna myndast leggstuttir eða legglausir, dökkrauðir, spísslaga æxlilaukar á haustin (Lid og Lid 2005).
GreiningBlöðin eru grasleit, með laukbragði og hvít blómin á löngum leggjum.
Verndun
Villilaukur er friðlýstur samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.. Hann er þó ekki á válista.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Við tún og bæi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Villilaukur (Allium oleraceum)