Útbreiðsla
Allalgeng um allt land frá láglendi upp í um 500 m hæð. Hæstu fundarstaðir eru í 730 m hæð í botni Glerárdals við Akureyri og í 660 m í Kýlingum á Landmannaafrétti (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Vex í deiglendi og ekki mjög blautum mýrum, einkum oft á tjarnabökkum eða við uppþornuð tjarnastæði (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Meðalhá stör (20–50 sm) með litlum, ljósleitum öxum sem liggja þétt upp við stráið. Blómgast júní–júlí.
BlaðVex í þéttum, allstórum toppum. Stráin hvassþrístrend og vanalega skástæð út frá miðju toppsins. Blöðin flöt, 1,5–3,5 sm breið (Hörður Kristinsson 1998).
BlómFjögur til sjö, öfugegglaga, aflöng, ljósgrágræn öx með nokkru millibili á stráunum. Örfá karlblóm neðst í hverju axi. Axhlífar ljósgrænar, himnukenndar, odddregnar. Hulstrin ljósgulgræn, topplaga, frænin tvö (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst línstör en hún hefur móleitari, styttri og hnöttóttari öx og fíngerðari strá.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Vex í deiglendi og ekki mjög blautum mýrum, einkum oft á tjarnabökkum eða við uppþornuð tjarnastæði (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Blátoppastör (Carex canescens)