Dvergstör (Carex glacialis)

Útbreiðsla

Hún er nokkuð algeng víða á hinu landræna svæði á austanverðu Norðurlandi. Dvergstörin vex frá láglendi upp í 800 m hæð, hæst skráð í fjöllum við Glerárdal við Akureyri og sunnan í Illviðrahnjúkum við Hofsjökul í um 900 m hæð.

Búsvæði

Uppi á þurrum klettaásum, brúnum og bungum í malarkenndum jarðvegi og mójarðvegi.

Lýsing

Mjög lágvaxin stör (4–8 sm) með stutt toppax með karlblómum og nokkur fáblóma kvenöx. Blómgast í júní–júlí.

Blað

Vex í litlum, þéttum toppum. Stráin stutt, sívöl, fremur bein. Blöðin þéttstæð, um 1 mm á breidd, grópuð eða kjöluð, snarprend, þrístrend í endann.

Blóm

Karlblómin í stuttu toppaxi. Kvenblómin í nokkrum, fáblóma, þéttstæðum kvenöxum. Axhlífar brúnleitar með breiðum himnufaldi. Hulstrin mislit, græn og brúnleit, gljáandi, bústin, nær hnöttótt með alllangri trjónu. Frænin þrjú.

Greining

Auðþekkt í blóma. Heimkynnin minna á móastör og blaðtoppar einnig en dvergstörin hefur mörg öx og styttri og beinvaxnari blöð.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Dvergstör (Carex glacialis)