Útbreiðsla
Hún er algeng um allt land frá láglendi upp í 600 m hæð. Hæst er hún fundin á Kiðagilshnjúk í 750 m hæð og Böggvisstaðafjalli við Dalvík í 700 m (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Móar og hálfdeigjur.Lýsing
Lágvaxin stör (8–25 sm) með tveim til þreim kvenöxum hangandi á hárfínum, löngum leggjum. Blómgast í júní.
BlaðStráin sljóstrend, gárótt. Blöðin flöt, 1–2 mm breið neðan til, þrístrend í endann (Hörður Kristinsson 1998).
BlómTvö til þrjú kvenöx hangandi á hárfínum, löngum leggjum. Eitt lítið karlax. Kvenöxin eru lítil og fíngerð, ljósgræn í fyrstu en verða síðan ljósbrún. Axhlífar ljósbrúnar með hvítleitum, himnukenndum, slitróttum jöðrum. Hulstrið ljósbrúnt eða grænleitt, með alllangri trjónu, gljáandi, um 3 mm á lengd. Þrjú fræni (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist toppastör sem hefur kvenblóm ofan til í endaaxinu og karlblóm neðst, kvenöxin eru brúnni, uppréttari og dreifast með lengra millibili um stöngulinn.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Móar og hálfdeigjur.Biota
- Tegund (Species)
- Hárleggjastör (Carex capillaris)