Útbreiðsla
Mjög sjaldgæf. Hún hefur aðeins fundist á austanverðu Norðurlandi og virðast aðalheimkynni hennar vera í flóum Fljótsheiðarinnar.Vistgerðir
Mýrar og flóar.Lýsing
Meðalhá stör (15–40 sm) með löngum blágrænum blöðum og nær hnöttóttum öxum.
BlaðMyndar gisnar þúfur. Blöð löng og blágræn, 1–2 mm á breidd. Strá bein og upprétt, hvassstrend og ójöfn efst (Lid og Lid 2005).
BlómAxskipan þétt, með þrjú til fimm grábrún, egglaga eða nær hnöttótt öx. Karlblóm neðst í öxunum. Axhlífar brúnar og yddar með breiðum himnufaldi og ljósri taug, örlítið styttri en hulstrin. Hulstur 2,5–3,5 mm löng, grágræn með lítt áberandi taugum og stuttri trjónu (Lid og Lid 2005).
GreiningÖxin á heiðastörinni líkjast í fljótu bragði öxum rjúpustararinnar en eru þó heldur bústnari og dekkri. Þrístrent stráið er einnig mjög snarpt af niðurvísandi broddum á köntum þess. Heiðastörin er einnig hávaxnari og uppréttari en rjúpustörin sem aldrei vex í flóum. Heiðastör vex heldur ekki í toppum heldur á strjáli.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | DD |
Forsendur flokkunar
Heiðastör flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 9 km2.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Heiðastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Heiðastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Verndun
Heiðastör er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Mýrar og flóar.Biota
- Tegund (Species)
- Heiðastör (Carex heleonastes)