Útbreiðsla
Algengt um allt land á láglendi upp að 500 m (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Gróskumikið mólendi, bollar og grónar gilbrekkur (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Meðalhá jurt (15–30 sm) með lensulaga, greipfætt blöð og grænleit blöð í aflöngum klasa. Blómgast í júní.
BlaðBlöðin eru stakstæð, odddregin, lensulaga, greipfætt, þau neðstu stærst, 5–10 sm löng og 10–18 mm breið (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru í löngum klasa efst á stöngli. Blómhlífin ljósgræn eða gulgræn, varaskipt og mynda þrjú blöð hvelfda efri vör, tvö vísa niður á við til hliðar og eitt óskipt blað vísar beint niður. Blómið er yfirsætið og frævan því undir blómhlífinni, rifjuð og snúin. Bjúglaga spori kemur niður úr blómhlífinni (Hörður Kristinsson 1998).
AldinFræin afar mörg, örsmá (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningÞað líkist nokkuð hjónagrösum. Hjónagras þekkist á þríflipuðu blaði í neðri vör, smærri blómum og fíngerðari blómskipan, laufblöðin hlutfallslega breiðari og meira gljáandi á efra borði.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Gróskumikið mólendi, bollar og grónar gilbrekkur (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Friggjargras (Platanthera hyperborea)