Útbreiðsla
Algengt á vestanverðu Suðurlandi en ekki annars staðar nema þá sem slæðingur (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Blautir skurðir, síki með leirbotni og aðrir vatnsfarvegir (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Stórvaxin grastegund (50–100 sm) með langan, grannan punt. Blómstrar í júlí–ágúst.
BlaðStráin 4–6 mm gild. Blöðin 4–10 mm breið. Slíðurhimnan 6–10 mm löng (Hörður Kristinsson 1998).
BlómPunturinn langur, grannur og fremur gisinn. Smáöxin 10–25 mm löng, átta- til tólfblóma. Axagnir stuttar (2–4 mm), himnukenndar, grænleitar eða glærar. Neðri blómögn fimm- til sjötauga, græn, 5–7 mm, með sljóum eða slitróttum oddi, stutthærð, himnurend ofan til (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið er hneta þar sem fræskurn og aldinhýði er runnið saman í eitt (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Blautir skurðir, síki með leirbotni og aðrir vatnsfarvegir (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Flóðapuntur (Glyceria fluitans)