Loðgresi (Holcus lanatus)

Útbreiðsla

Vex villt undir Eyjafjöllum og í Mýrdal og er þar nokkuð algengt. Annars staðar á landinu kemur það aðeins fyrir sem innfluttur slæðingur og er þar afar sjaldgæft. Finnst aðeins á láglendi.

Búsvæði

Graslendi, brekkur, mólendi og skurðbakkar (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Fremur hávaxin grastegund (30–60 sm) með bleikfjólubláum punti. Blómgast í júní–júlí.

Blað

Stöngullinn, blöðin og slíðrin stutt- en þétthærð. Blöðin 4–8 mm breið. Slíðurhimnan stutt, 1–1,5 mm, hærð (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Punturinn oftast bleikfjólublár, 6–15 sm langur, þéttur. Smáöxin tvíblóma, tvíkynja blóm neðar, einkynja karlblóm ofar. Axagnir 4–5 mm langar, loðnar, ytri axögnin með einni, sú innri með þrem upphleyptum taugum og stuttum týtubroddi í endann. Blómagnirnar gljáandi, grænar, hárlausar en löng hár við grunninn. Ytri blómögn efra blómsins með boginni eða snúinni týtu (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinið er hneta þar sem fræskurn og aldinhýði er runnið saman í eitt (Lid og Lid 2005).

Greining

Líkist engri annarri íslenski grastegund, aðeins lógresi er eins áberandi loðið.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Grasætt (Poaceae)
Tegund (Species)
Loðgresi (Holcus lanatus)