Skógarkerfill (Anthriscus sylvestris)

Útbreiðsla

Skógarkerfill er slæðingur í byggð sem borist hefur hingað frá útlöndum. Hans er fyrst getið í nágrenni Akureyrar á 3. áratug síðustu aldar en er nú löngu orðinn ílendur. Hann er farinn að dreifa sér ört út á eigin spýtur. Hann sækir mjög í að mynda samfelldar breiður sem ekkert fær stöðvað. Skepnur bíta hann lítið og hann vex einnig vel í skugga og þekur stundum skógarbotna.

Búsvæði

Slæðingur í görðum, við bæi og í rótuðu landi (Hörður Kristinsson 1998).

Lýsing

Fremur hávaxin planta (30–120 sm) með hvít blóm í stórsveipum. Blómgast í júní.

Blað

Blöðin tví- til þríhálffjöðruð, að mestu hárlaus nema á jöðrum og neðra borði, langstilkuð. Stilkur og stöngull gáraðir, lítt eða ekki loðnir (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru venjulega 8–16 saman í smásveipum sem aftur skipa sér saman í stórsveipi. Krónan hvít með nokkuð gulgrænleitum blæ, 2–7 mm í þvermál. Krónublöðin öfughjartalaga eða öfugegglaga, áberandi misstór. Bikarblöð vantar. Fræflar oftast fimm, vantar stundum suma eða alla. Ein tvíkleyf fræva með stuttum stílum. Smáreifablöð grænleit eða fjólubláleit, randhærð; stórreifar vantar (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinið móleitt eða dökkbrúnt, gljáandi, 5–8 mm á lengd, nær sívalt eða kantað en rifjalaust (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Skógarkerfill líkist nokkuð spánarkerfli en vantar anísbragðið af blaðstilkunum og hefur mun minni og fremur slétt aldini. Auk þessa eru blöðin nær hárlaus ólíkt blöðum spánarkerfils sem eru loðin.

Ógnir

Útrýming

Skógarkerfill er nú víða orðið hið mesta illgresi, og eru margir að berjast við að hefta útbreiðslu hans eða reyna að útrýma honum. Hann leggur undir sig frjósamt land sem hefur verið auðgað af köfnunarefni, svo sem gömul tún og lúpínubreiður. Skógarkerfillinn er talinn fjölær, en samkvæmt reynslu er hann fremur fáær, sem sjá má á því að þegar hann er rifinn upp með rótum má oft sjá fúinn stöngul móðurplöntunnar í miðju, en fjölda ungplantna umhverfis. Sem betur fer myndar kerfillinn ekki skriðular renglur eins og sumar plöntur gera, en út úr rótarhálsinum vaxa oft örstuttar greinar sem mynda urmul af ungplöntum sem raða sér utan um rótarhálsinn. Einnig framleiðir hann mikið af fræjum sem sá sér um næsta nágrenni.

Tvær aðferðir hafa helst verið reyndar til að stemma stigu við kerflinum. Annars vegar að stinga hann upp með rótum og eyðileggja plönturnar. Hins vegar að úða á hann eitri, einkum roundup eða clinic. Auðvelt er að uppræta hann í byrjun með hvorri aðferðinni sem er, en þegar hann hefur myndað samfelldar breiður á stórum svæðum er það nánast ógerningur nema með mikilli og samfelldri eftirfylgni. Af fræi kerfilsins myndast á fyrsta ári lítil, margskipt blöð á löngum stilkum. Niður úr plöntunni myndast stólparót, líkt og lítil gulrót. Á næsta ári verða blöðin töluvert stærri, og á öðru eða þriðja ári nær plantan að blómstra. Á því stigi er auðvelt að stinga hana upp með einni spaðastungu, hreinsa utan af rótunum moldina og leggja plöntuna til þerris svo hún visni. Við þessu bregst plantan með því að draga næringu úr rótum og stönglum og leggur alla orku í að þroska fræin. Til að koma í veg fyrir það er gott að klippa blómin af stönglinum eftir að hún hefur verið rifin upp. Ef um ungplöntu var að ræða er aðeins ein forðarót, en eldri plöntur geta þegar verið umkringdar ungplöntum með sjálfstæðum smárótum utan á rótarhálsinum. Þær visna ásamt móðurplöntunni við þessa aðgerð. Ef móðurplantan var nokkurra ára gömul, gæti hún hafa verið búin að sá sér út í næsta nágrenni, og þarf því að gæta vel að því hvort ungar fræplöntur kunni að leynast umhverfis kerfilinn í meiri fjarlægð, því þá þarf að stinga þær upp líka. Ef við úðum eitri á blöð þessarar sömu kerfilsplöntu kemur hún til með að drepast ef um ungplöntu var að ræða. Ef hún hins vegar hefur myndað þyrpingu af smáafkæmum utan á rótarhálsinum, gætu þær sloppið við eitrið vegna þess hvað blöð þeirra voru lítið vaxin. Þær koma þá til með að vaxa upp síðar um sumarið eftir að móðurplantan hefur drepist. Ef plantan var búin að sá sér, og nokkrar smáplöntur hafa verið í nágrenninu eru nokkrar líkar á að þær sleppi líka við eitrið, vegna þess að þær voru lítt sýnilegar þegar eitrað var. Því er það gjarnan þannig þegar eitrað er á nokkra breiðu kerfilsins, að síðar um sumarið eða á næsta ári vaxa upp allmargar nýjar plöntur á miðju því svæði sem eitrað var, það eru ungar rótarhálsplöntur sem sluppu undan eitrinu. Á kraga umhverfis eitraða blettinn vaxa svo upp nýjar fræplöntur sem voru skammt á veg komnar þegar eitrunin átti sér stað. Því er óhjákvæmilegt ef árangur á að verða af eitrun, að fara yfir sama svæðið aftur síðar á sumrinu og næstu árin á eftir. Ef það er vanrækt verður breiðan enn þá þéttari og stærri eftir 2-3 ár. Sá ókostur fylgir einnig eitrunaraðferðinni, að grasið drepst algjörlega, og er mjög lengi að nema land aftur. Því losnar kerfillinn við samkeppni frá grasinu og á auðveldara með að loka svæðinu aftur og mynda samfelldar kerfilsbreiður. Njóli, hlíðableikja og ýmsar aðrar tvíkímblaða jurtir eru einnig mun fljótari á vettvang en grasið.

Á túnum og inni á lóðum er skógarkerfillinn ótrúlega lífseigur. Hann sést að vísu lítið með tíðum slætti, þar sem hann nær ekki að blómgast. En blöð hans leynast í grasinu og vaxa sífellt upp af sömu rótinni árum saman. Strax þegar slátturinn er vanræktur vex hann upp og blómstrar, ef ekki sama árið þá á því næsta. Sums staðar vex spánarkerfill innan um skógarkerfilinn. Hann hefur miklu djúpstæðari og fastari rætur, sem nást illa upp með einni spaðastungu.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sveipjurtaætt (Apiaceae)
Tegund (Species)
Skógarkerfill (Anthriscus sylvestris)