Spánarkerfill (Myrrhis odorata)

Útbreiðsla

Spánarkerfill var fluttur inn fyrir alllöngu síðan og hefur breiðst nokkuð út af sjálfsdáðum bæði í trjágörðum, við bæi og meðfram lækjum hér og þar um landið, vantar þó á stórum svæðum.

Búsvæði

Slæðingur hér og hvar við bæi og í görðum. Spánarkerfillinn verður nokkuð yfirgangssamur í frjóum og áburðarríkum jarðvegi og getur reynst erfitt að uppræta hann.

Lýsing

Tölvert stórvaxin planta (50–120 sm) með sterkt anísbragð af blaðstilkunum. Blómstrar hvítum blómsveipum í júní.

Blað

Stönglar og blaðstilkar loðnir, blöðin ljósgræn, þrífjöðruð. Sterkt anísbragð er af blaðstilkunum (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru í tvöföldum, allstórum (5–10 sm) sveipum, 2–4 mm í þvermál. Krónublöðin fimm, grænhvít, 2 mm á lengd, skert í oddinn. Fræflar fimm. Frævan með tveim stílum. Smáreifarnar randhærðar, stórreifar vantar (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Tvö, gljáandi, 20–25 mm löng, dökkbrún deilialdin með skörpum rifjum. Berast illa með vindi vegna þyngdar sinnar en fljóta vel í vatni (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Hann er auðþekktur frá öðrum sveipjurtum á hinni sterku aníslykt og anísbragði af blaðstilkum. Líkist helst skógarkerfli. Spánarkerfill þekkist best frá honum á hæringu og ljósari lit blaðanna, bragði blaðstilkanna og á miklu stærri, skarprifjuðum aldinum. Það er líka erfiðara að uppræta spánarkerfilinn með því að grafa upp ræturnar, því þær eru áberandi stærri og sterkari.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sveipjurtaætt (Apiaceae)
Tegund (Species)
Spánarkerfill (Myrrhis odorata)