Lýsing
Fremur lágvaxin planta (ca 15 sm) með gular blómkörfur og blöð í stofnhvirfingu.
BlaðLitlar til miðlungsstórar plöntur. Blöð 4–15 sm löng, niðurliggjandi. Blöð grunntennt til djúpflipótt með allt að sex flipapörum, flipar mjóir. Blaðstilkar grannir, grænir, rauðir eða purpuralitir (Lid og Lid 2005).
BlómBlómleggur allt að 15 sm langur, grannur, oft purpuralitur, uppsveigður eða uppréttur. Karfan 15–35 mm breið. Ytri reifablöð allt að 6 mm löng, oft blágræn og nokkuð purpuralit með ljósan kant. Blómkörfur stuttar og breiðar, ljósgular. Jaðarblómin eru með gráa, brúna eða purpuralita rönd á neðra borði (Lid og Lid 2005).
AldinAldin rauð, purpuralit eða fjólublá (Lid og Lid 2005).
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Engjafífill (Taraxacum erythrospermum)