Lýsing
Undafífill með eitt til þrjú stöngulblöð, oftast tígullaga. Körfur smáar, niðurmjóar og blóm gul.
BlaðPlöntur með blaðhvirfingu á blómgunartíma og eitt til þrjú stöngulblöð. Stöngulblöð oftast tígullaga. Neðstu stöngulblöð nær alltaf stilkuð og stilkur þess nokkuð greinilega greipfættur. Ystu hvirfingablöð oft næstum kringlótt eða egglaga en önnur tígullaga eða breiðlensulaga. Stundum eru öll hvirfingblöðin tígullaga. Þau geta einnig flest verið egglensulaga eða breiðlensulaga. Blöð græn, bláleit, gulleit eða dálítið rauðleit. Blöð oft næstum heilrend en geta verið hvasstennt, einkum neðantil (Bergþór Jóhannsson 2004).
BlómKörfur áberandi smáar og niðurmjóar, oft fjölmargar. Stílar á þurrkuðum plöntum oftast næstum svartir en geta verið gulgráir. Reifablöð löng, frammjó, einlit, dökk. Kirtilhár á reifum löng, dökk. Auk kirtilhára eru stjarnhár og broddhár á reifablöðum (Bergþór Jóhannsson 2004).
AldinFræ með svifhárakransi.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Ingimarsfífill (Hieracium arrostocephalum)