Útbreiðsla
Finnst aðeins syðst á landinu, í Vestur-Skaftafellssýslu, Mýrdal og undir Eyjafjöllum, í Vestmannaeyjum og á örfáum stöðum sunnan á Reykjanesskaga (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Grasbrekkur, einkum móti suðri (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Fremur lágvaxin planta (15–35 sm) með allstór laufblöð í stofnhvirfingu og mörg, fjólublá blóm í þéttum kolli. Blómgast í júlí–ágúst.
BlaðStöngullinn langur, blaðfár. Stofnblöðin stilkuð, í hvirfingu, lensulaga eða oddbaugótt, allstór, 3–12 sm á lengd og 2–5 sm á breidd, nær heilrend, gishærð (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru mörg og standa þétt í hnöttóttum kolli sem er 1,5–2 sm í þvermál. Einstök blóm 5–6 mm í þvermál, bláfjólublá, sjaldnar hvít, fjórdeild, með fjórum fræflum og einum stíl. Bikar og króna hvíthærð utan (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinin eru hnetur með svifkransi (Stefán Stefánsson 1948).
GreiningLíkist helst rauðkolli sem er þó með rauðari og flatari koll sem líkist fremur körfu í lögun. Eins hefur rauðkollur fjaðurskipt blöð en ekki stúfan.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Grasbrekkur, einkum móti suðri (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Stúfa (Succisa pratensis)