Fjallabrúða (Diapensia lapponica)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf, aðeins á Norður- og Norðausturlandi. Útbreiðsla hennar á Norðurlandi er all sérstæð þar sem hún er einkum á fjöllum nærri ströndinni. Það er fyrst nýlega sem hennar hefur orðið vart langt inni í landi á Skagafjarðarhálendinu.

Búsvæði

Uppi á brúnum eða bungum sem standa að mestu upp úr snjó á veturna, oftast í fremur rökum lyngjarðvegi, einkum til fjalla.

Lýsing

Mjög lágvaxin planta (2–8 sm) sem hefur smávaxin, sígræn, skinnkennd blöð sem mynda þófa í sverðinum. Blómstar hvítum, fimmdeildum blómum í júní.

Blað

Blöðin eru í þéttum hvirfingum, oft á mörgum, blómlausum blaðsprotum, heilrend, aflöng eða spaðalaga, sígræn, fremur þykk og skinnkennd, hárlaus og með niðurbeygðum jöðrum, sem mynda þófa í sverðinum, 5–10 mm á lengd, sígræn (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru 10–12 mm í þvermál. Krónublöðin hvít. Bikarblöðin snubbótt, gulgræn eða rauðmenguð með mjóum himnujaðri. Fræflar fimm, frævan þríblaða með einum löngum stíl (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Óblómgaðir geta sprotarnir minnt á sauðamerg. Blómin eru ekki ósvipuð og á þúfusteinbrjót en frá honum er hún auðþekkt á blöðunum.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Fjallabrúðuætt (Diapensiaceae)
Tegund (Species)
Fjallabrúða (Diapensia lapponica)