Útbreiðsla
Það er algengt um allt land en vantar víða á láglendi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Það vex einkum til fjalla í bollum og snjódældum, snöggum bölum og rökum brekkum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Mjög lágvaxin planta (2–4 sm) með þéttblöðótta sprota og barrlaga blöð. Blómstrar hvítum klukkum í maí–júní.
BlaðOft í þéttum breiðum. Blaðsprotar þéttblöðóttir. Blöðin 2–3 mm á lengd, barrlaga, heilrend og odddregin (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru 5–7 mm í þvermál. Krónan hvít eða gulhvít, samblaða, djúpklofin, fliparnir snubbóttir. Bikarblöðin um eða tæplega helmingi styttri en krónublöðin, dökkrauð, oddmjó. Blómleggirnir 6–12 mm á lengd, dökkir. Tíu fræflar með tveim löngum, þráðmjóum hornum út úr frjóhirslunum. Ein fimmblaða fræva (Hörður Kristinsson 1998).
AldinHýðisaldin sem opnast með fimm langrifum (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund, auðþekkt á drúpandi klukkum með rauðum bikarblöðum.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Það vex einkum til fjalla í bollum og snjódældum, snöggum bölum og rökum brekkum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Mosalyng (Harrimanella hypnoides)