Dýragras (Gentiana nivalis)

Útbreiðsla

Algengt um allt land. Finnst oft upp í 800 m hæð til fjalla, hæst skráð uppi á Þverárdalsbrúnum við Þorvaldsdal, Eyjafirði í 1000 m hæð.

Búsvæði

Móar, þurrir harðbalar, vallendi, snögggrónar flatir eða bollar.

Lýsing

Einær lítil jurt (4–12 sm) sem blómstrar fagurbláum, fimmdeildum blómum í júní–júlí.

Blað

Einær, hárlaus jurt. Stöngullinn grannur, strendur. Laufblöðin gagnstæð, oddbaugótt eða egglaga, lítil (6–9 mm) og heilrend (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin 7–8 mm í þvermál, fimmdeild. Krónublöðin djúpblá, ydd í endann svo blómin líta út sem lítil stjarna. Bikarinn hlutfallslega stór, 1–2 sm, klofinn niður um þriðjung í fimm oddmjóa flipa með dökkan kjöl. Fræflar fimm með gulhvíta frjóhnappa. Ein oddmjó fræva með einum stíl (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist helst maríuvendlingi sem er þó auðþekktur á ljósari, fjórdeildum blómum, bikarinn klofinn miklu lengra niður. Blástjarna þekkist frá dýragrasi á stærri og ljósari blómstjörnu, bikarinn frábrugðinn, klofinn langt niður.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Maríuvandarætt (Gentianaceae)
Tegund (Species)
Dýragras (Gentiana nivalis)