Maríuvöndur (Gentianella campestris)

Útbreiðsla

Nokkuð algengur en er síður að finna inni á hálendinu. Hann finnst oft upp að 500 m hæð, hæst skráður í 610 m undir Arnarfellsbrekku við Hofsjökul, og 600 m á Járnskara við Norðfjörð.

Búsvæði

Þurrar grundir, grasbalar, gilkinnungar og brekkur.

Lýsing

Oftast tviær, fremur lágvaxin planta (10–18 sm) með tiltölulega stórum, fjólubláum blómum. Blómgast í júlí–ágúst.

Blað

Stöngullinn stinnur, gáraður með upphleyptum strengjum, hárlaus, oft greindur ofan til. Blöðin egglaga til egglensulaga, oftast 2–3 sm á lengd, hárlaus, heilrend (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Krónan er pípulaga, um 2–2,5 sm á lengd, dökkfjólublá, krónufliparnir með hárkenndum ginleppum að innanverðu. Bikarinn klofinn djúpt niður, tveir ytri fliparnir breiðir (5–7 mm), þeir innri miklu mjórri. Fjórir fræflar, ein fræva með tvíklofnu fræni (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist helst engjavendi og grænvendi. Maríuvöndurinn hefur fjólublárri blóm og áberandi fjólublámenguð blöð og stöngla, en blómaliturinn er nokkuð breytilegur, t.d. er maríuvöndur með mjög ljós eða nærri hvít blóm nokkuð algengur á höfuðborgarsvæðinu. Því er hætta á að hann verði greindur sem grænvöndur, en maríuvöndurinn er auðþekktur á tveim breiðum og tveim mjóum bikarblöðum.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Maríuvandarætt (Gentianaceae)
Tegund (Species)
Maríuvöndur (Gentianella campestris)