Lýsing
Fremur lágvaxin jurt (10–30 sm), einær með purpurarauð blóm.
BlaðStöngull grannur með langa stöngulliði. Blöð bogtennt eða flipótt, þau efstu legglaus, þétt saman og mynda líkt og gjörð utan um stöngulinn (Lid og Lid 2005).
BlómBikarinn stuttur (5–7 mm) og með útstæð hár. Krónan purpurarauð (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist helst akurtvítönn. Varpatvítönn hefur kringluleitari blöð, þau efri stilklaus og feðma um stöngulinn.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Varpatvítönn (Lamium amplexicaule)