Útbreiðsla
Algeng inn til heiða.Vistgerðir
Meðfram lækjum, í lindabollum, við uppsprettur og dý.Lýsing
Fremur lágvaxin planta (8–15 sm) með fjórdeildum, bleikum blómum. Blómgast í júní–júlí.
BlaðStöngullinn strendur, tvíhliðhærður. Blöðin gagnstæð, egglaga eða sporbaugótt, oftast ávöl fyrir endann, smátennt eða nær heilrend, hárlaus, 1–2,5 sm á lengd og 0,5–1,2 sm á breidd (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru rauð, fjórdeild, 5–7 mm á lengd. Bikarinn um helmingi styttri en krónan, rauður eða grænleitur. Fræflar átta. Ein fjórblaða, hárlaus, rauð fræva (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið 2,5–4 sm langt og klofnar í fjórar ræmur við þroskun. Fræin með löngum, hvítum svifhárum (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist lindadúnurt en heiðadúnurt þekkist á því að jarðrenglur eru styttri og fíngerðari, blómin heldur minni, blöðin minna tennt og ávalari fyrir endann. Ljósadúnurt líkist henni mjög en er ljósgrænni og hefur nær hvít blóm.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Meðfram lækjum, í lindabollum, við uppsprettur og dý.Biota
- Tegund (Species)
- Heiðadúnurt (Epilobium hornemannii)